Karlakór Grafarvogs

Karlakór Grafarvogs heldur upp á 10 ára afmæli sitt á þessum tónleikum sem haldnir eru vorið 2022, vorið eftir 10 ára afmælið sem skýrist af heimsfaraldri Covid pestar sem haft hefur mikil áhrif á mannlíf um allan heim, þar á meðal kórastarf á Íslandi.

En Kalakór Grafarvogs á sér nokkra sögu.

Það var haustið 2011 sem Íris Erlingsdóttir kórstjóri Karlakórs Grafarvogs ákvað að stofna karlakór upp á eigin spýtur, fyrst kvenna á Íslandi.

Eftir að hafa ráðfært sig við séra Vigfús Þór Árnason þáverandi sóknarprest í Grafarvogssókn og fengið hjá honum vilyrði fyrir því að fá aðgang að Grafarvogskirkju fyrir æfingar væntanlegs karlakórs í Grafarvogi, auk hvatningar og stuðnings séra Vigfúsar, birti hún auglýsingu um væntanlega stofnun kórsins í fjölmiðlum sem og á plakötum sem hengd voru upp á nokkrum áberandi stöðum í hverfinu.

Þrjátíu karlar hlýddu kallinu og mættu á stofnfund kórsins sem haldinn var í kirkjunni 19. september.

Síðan hefur kórinn ekki litið um öxl. Einhverjar mannabreytingar hafa orðið á tímabilinu, fáeinir hafa helst úr lestinni og aðrir komið í staðinn eins og gengur. En kjarninn í kórnum er sterkur og samur og hafa kórmenn gaman af félagsskap hvers annars og njóta þess að syngja saman undir stjórn Írisar.

Karlakór Grafarvogs tekur ævinlega vel á móti nýjum félögum, en kórinn mun hefja störf á haustmisseri 2022 í byrjun september nk. Áhugasamir söngmenn á öllum aldri eru boðnir hjartanlega velkomnir og eru nýir kórfélagar beðnir um að setja sig í samband við kórstjóra Karlakórs Grafarvogs, Írisi Erlingsdóttur, en netfang hennar er irise@simnet.is